Mótsgjald Norðurálsmótsins 2027
Norðurálsmótið
MÓTSGJALD 2027
7.Flokkur
- 2.000kr
staðfestingagjald
Hægt að velja um þrjá mismunandi greiðsluleiðir
- 33.000kr
Mótsgjald með gistingu og mat - 30.000kr
Mótsgjald með mat en án gistingar - 16.500kr
Mótsgjald án matar og án gistingar
Innifalið í verði er þátttökugjöf
Meira um mótið hér:
Helstu upplýsingar
7.flokkur
Staðfestingargjald
Staðfestingagjaldið er 2.000kr á hvern einstakling. Gjaldið dregst ekki frá mótsgjaldi og er einungis endurgreitt ef mótið fellur niður.
Síðasti dagur til að greiða staðfestingagjald er 1.febrúar 2027
Þátttökugjald
Hverjum og einum keppanda er velkomið að skipuleggja sitt eigið mót með því að velja mismunandi leiðir að mótsgjaldi. Það sem er innifalið í mótsgjaldi er skrúðganga, setningarathöfn,Kappleikir í þrjá daga, Norðurálsmótgjöf, skrúðganga,setningarathöfn, grillveisla, kvöldvaka og sundferð.
- Auk þess fá allir leikmenn þáttökugjöf.
- Innifalið í gistigjaldi og mat er:
- Innifalið í þátttökugjaldi er greiðsla fyrir einn fullorðinn með hverju liði sem er í gistingu og mat.
Morgunmatur: laugardagur og sunnudagur - Hádegismatur: laugardagur og sunnudagur
- Kvöldmatur: föstudag og laugardag
Gisting
Félög geta valið hvort allur hópurinn gistir eða bara hluti hópsins sem verður í gistingu. Gerð er krafa um 1 - 2 fullorðna í gistingu með hverju félagi í hverri stofu.
Það er gott ef félögin geti sent í tölvupósti hvort þau verði í gistingu eða ekki og senda á [email protected]
Frekari upplýsingar.
8.flokkur
Þátttökugjald:
Gjald fyrir hvern keppanda er 3.500 kr. Við opnun fyrir skráningu 1.maí 2027 og þarf skráning að berast fyrir 10.júní 2027. Eindagi á greiðslu til félagsins er einnig 10.júní.
Greiða þarf inn á:
Kennitala: 500487-1279 Knattspyrnufélag ÍA
552-14-400883
Vinsamlegast sendið kvittun á:
[email protected] , setja í skýringu hvaða lið er skráð til leiks og fjölda liða.
KFÍA sendir út reikning á félögin ...
Staðfestingar og þáttökugjald skal leggjast inn á reikning 552-26-6077 kt:500487 1279.
Setjið lið, fjölda og kyn í skýringu, t.d ÍA35KK
Fyrirvari vegna myndatöku á Norðurálsmótinu
Hluti af Norðurálsmótinu er myndataka frá setningu mótsins, leikjum keppenda og stemningunni af hliðarlínunni. Frá árinu 2011 hefur SportHero séð um að varðveita sögu mótsins með myndatöku á þátttakendum og umgerð Norðurálsmótsins. Mótið er allt myndað við bestu aðstæður og geta foreldrar nálgast myndir af barni sínu á merktu svæði á mótinu sem og nálgast myndirnar af heimasíðu SportHero eftir að mótinu líkur.
Allir þátttakendur fara með liði sínu í liðsmyndatöku og að loknu mótsins gefst forráðamönnum kostur á að nálgast myndirnar af liði sínu án endurgjalds, af heimasíðunni www.sporthero.is
Með þátttöku á Norðurálsmótinu er forráðamönnum því ljóst að barn þeirra verður að öllum líkindum myndað og þeir samþykkir því og myndir birtast af börnum þeirra, þeim til nálgunnar á mótinu eða af heimasíðu SportHero.
Til þeirra forráðamanna sem ekki vilja að barn þeirra sé myndað, er þeim bent á að senda póst á [email protected] og tilgreina nafn nafn barns, lið, númer á treyju og leiktíma liðsins svo hægt sé að verða við óskum um að barn sé ekki myndað. Frekari fyrirspurnum um myndatöku er einnig hægt fá svör við með pósti á [email protected] eða með símtali í síma: 662-1111









